Global AI Pulse á fyrsta ársfjórðungi
Gervigreind er orðin lykilþáttur í samkeppnishæfni
Fjárfestingar aukast hratt en aðeins 1 af hverjum 10 fyrirtækjum nær raunverulegum árangri samkvæmt Global Ai Pulse, nýrri könnun KPMG á alþjóðavísu. Niðurstöður sýna að 95% fyrirtækja sem tóku þátt í könnuninni eru þegar með skýra AI stefnu og fjárfestingar halda áfram að aukast hratt. Þrátt fyrir þetta er verulegt bil á milli metnaðar og árangurs: Aðeins um 8% fyrirtækja mæla raunverulegan arð af gervigreind og einungis 11% teljast í hópi leiðandi aðila sem eru að skila mælanlegu virði.
Á sama tíma segja 64% fyrirtækja að gervigreind sé þegar farin að skila virði, sem undirstrikar að tækifærin eru raunveruleg en nýting þeirra er mjög misjöfn.
Leiðandi fyrirtæki skera sig úr með því að:
- samþætta gervigreind í kjarnastarfsemi, ekki aðeins sem tilraunaverkefni
- og aðlaga ferla, gögn og stjórnarhætti þannig að áhrif gervigreindar skili mælanlegum árangri
Á meðan sitja mörg fyrirtæki eftir föst í tilraunastarfsemi þar sem áskoranir við að skala lausnir og skortur á færni og stjórnskipulagi hindra virðissköpun.
Hvað skilur á milli þeirra sem umbreyta fjárfestingu í samkeppnisforskot og hinna sem gera það ekki?
Niðurstöður úr AI Pulse sýna að lykillinn liggur ekki í meiri fjárfestingum heldur í getu til að umbreyta rekstrarlíkani, samþætta gervigreind þvert á starfsemina og keyra hana sem samræmt kerfi á fyrirtækjavísu.
Smelltu á hnappinn hér fyrir neðan til að lesa allar niðurstöður á ensku.