Kortlagning á hagrænum áhrifum golfhreyfingarinnar er mikilvæg þar sem áhrif hennar ná langt út fyrir þann rekstur sem birtist í ársreikningum golfklúbba og skiptir máli til að hægt sé að taka upplýstar ákvarðanir á mörgum stöðum. Golfhreyfingin er ekki eingöngu íþróttastarf heldur umfangsmikil samfélagsleg starfsemi sem skapar margvísleg efnahagsleg verðmæti.
Nýleg gögn sýna að beint hagspor golfhreyfingarinnar nam um 11,7 milljörðum króna árið 2024. Beint hagspor golfhreyfingar er sú verðmætasköpun sem verður til vegna starfsemi sem byggir alfarið á golfi. Þar undir falla tekjur golfklúbba og golfvalla, golfverslun og sérhæfð golfferðaþjónusta, en ekki almenn afleidd áhrif á aðrar atvinnugreinar. Einnig eru veruleg óbein efnahagsleg áhrif en þau áhrif hafa ekki verið áætluð í þessari yfirferð.
Markmið þessarar samantektar er að varpa ljósi á þessu hagrænu áhrif og þann gífurlega vöxt sem hefur átt sér stað í golfhreyfingunni á síðastliðnum árum.