KPMG hefur um áratugaskeið verið leiðandi í þjónustu við sveitarfélögin í landinu, jafnt stór og smá, m.a. á sviði rekstrar, reikningsskila, endurskoðunar, áætlanagerðar, stjórnsýslumála og svo mætti lengi telja. Við leggjum ríka áherslu á fjölbreytt þjónustuframboð og að þróa þjónustu okkar stöðugt í takt við þarfir sveitarfélaganna á hverjum tíma. Við leggjum metnað okkar í að veita framúrskarandi þjónustu til sveitarfélaga af öllum stærðum og gerðum, vítt og breytt um landið.
Í kjölfar sveitarstjórnarkosninga á fjögurra ára fresti höfum við boðið kjörnum fulltrúum upp á fræðslufundi um starfsumhverfi sveitarfélaganna almennt en sníðum fundina að aðstæðum í hverju sveitarfélaga í samræmi við óskir og þarfir á hverjum stað. Að loknum sveitarstjórnarkosningum bjóðum við kjörnum fulltrúum og eftir atvikum stjórnendum sveitarfélaga til slíkra fræðslufunda þar sem í boði er almenn umfjöllun um einstök málefni ásamt sértækari umfjöllun sem sniðin er að aðstæðum á hverjum stað.
Fyrir frekar upplýsingar um útfærslu og mögulegar tímasetningar fyrir hvert sveitarfélag bendum við fólki á að senda línu á Magnús Ólaf Kristjánsson.