KPMG á Íslandi leggur áherslu á að hafa jákvæð áhrif á samfélagið með markvissum stuðningi við verkefni sem efla atvinnulíf, nýsköpun, sjálfbærni og samfélagslega velferð. Framlag félagsins felst meðal annars í fjárstuðningi, miðlun sérfræðiþekkingar og þátttöku starfsfólks í samfélagsverkefnum.
Styrktar- og samfélagsstefna KPMG á Íslandi byggir á gildum félagsins og alþjóðlegum áherslum KPMG um ábyrgð, sjálfbærni og langtímaverðmætasköpun fyrir samfélagið.
Markmið stefnunnar er að tryggja að samstarfsverkefni og styrkveitingar styðji við framtíðarsýn félagsins og skapi raunverulegt virði fyrir íslenskt samfélag.
Áherslur
KPMG vill taka virkan þátt í samfélaginu og styðja við verkefni sem skapa raunverulegt virði og jákvæð áhrif. Með nýrri styrktarstefnu leggur KPMG aukna áherslu á markvissan og gagnsæjan stuðning við samfélagsverkefni á landsbyggðinni með það að markmiði að styðja við fleiri verkefni og efla enn frekar tengsl félagsins við samfélagið.
Samfélagsstyrkirnir eru ætlaðir verkefnum á eftirfarandi starfssvæðum KPMG:
- Borgarnesi
- Sauðárkróki
- Akureyri
- Egilsstöðum
- Suðurneskjum
- Selfossi
Styrkirnir styðja við verkefni sem hafa jákvæð áhrif á samfélagið og samræmast áherslum KPMG um ábyrgð, sjálfbærni og langtímaverðmætasköpun. Samfélagsstyrkirnir lúta sömu styrktarstefnu og úthlutunarreglum og aðrir styrkir KPMG og eru metnir á grundvelli sömu matsviðmiða.
Umsóknarfrestur er frá 1. október til 30. nóvember ár hvert og kemur þá umsóknarform hér inn á síðuna.
Umsóknir eru metnar af styrktarnefnd KPMG sem ákveður úthlutun á grundvelli fyrirfram skilgreindra matsviðmiða. Úthlutun styrkja fer fram í janúar.
Reglur um úthlutun
Við mat á styrkbeiðnum er tekið mið af samþykktum árlegum styrktarramma. Styrktarnefnd getur forgangsraðað eða hafnað beiðnum, jafnvel þótt þær uppfylli almenn viðmið, ef fjárheimildir eru fullnýttar eða ef óskað er eftir stuðningi sem ekki fellur að markmiðum stefnunnar.
Við úthlutun er sérstaklega horft til:
- Skýrt afmarkaðra verkefna með sýnileg samfélagsleg áhrif
- Viðurkenndra félagasamtaka og stofnana
- Verkefna sem styrkja tengsl við atvinnulíf og framtíðarhæfni samfélagsins
- Verkefna sem tengjast sjálfbærni, nýsköpun eða almannaheill
Allar beiðnir um styrkveitingar eiga að berast á styrkir@kpmg.is. Styrktarnefnd fer yfir beiðnir einu sinni í mánuði og þær metnar út frá áhrifum og samræmi við stefnu. KPMG birtir yfirlit yfir þau verkefni sem hafa hlotið stuðning á hverju ári.
Vinsamlega athugið að samfélagsstyrkir eiga við um allar styrkbeiðnir á landsbyggðinni.
Athugið að ekki er veittur stuðningur við:
- Einstaklinga
- Pólitísk eða trúarleg samtök
- Verkefni sem stangast á við siðareglur eða gildi KPMG
- Viðburði eða annað sem fellur utan skilgreindra áhersluflokka í stefnu
- Með ýmsum lógóbirtingum