Skapaðu virði með gögnum
KPMG hefur á að skipta öflugu teymi ráðgjafa í viðskiptagreind og gagnahögun. Verkefnin felast m.a. í uppsetningu á gagnatengingum, mælaborðum og aðstoð við sjálfvirka skýrslugjöf. Þetta nær t.d. yfir rekstrarmælaborð, verkefnamælaborð, mannauðsmælaborð og framleiðslumælaborð auk sértækra greininga af ýmsu tagi, gagnahögunar og eftirliti með flæði og gæðum gagna.
Ávinningurinn felst í bættum upplýsingum í rauntíma, tímasparnaði, bættri áætlanagerð, gagnadrifinni ákvarðanatöku og árangri í rekstri svo dæmi séu nefnd.
Metnaður KPMG felst í því að veita viðskiptavinum framúrskarandi þjónustu í viðskiptagreind þannig að þeir geti hagnýtt gögn á sem skilvirkastan hátt og skapað virði úr upplýsingunum.