Skip to main content

      Á undanförnum árum hefur skilningur á mikilvægi góðra stjórnarhátta aukist verulega, þar á meðal á hlutverki virks innra eftirlits og innri endurskoðunar. Þótt innri endurskoðunardeildir hafi starfað hér á landi í áratugi hefur vitund um virðisaukandi hlutverk þeirra styrkst til muna á síðustu árum, bæði hjá fyrirtækjum og opinberum aðilum.

      Með öflugri hlítni og betri gæðum upplýsinga styrkist ákvarðanataka stjórnenda og reksturinn verður traustari, gagnsærri og skilvirkari.

      Innri endurskoðun er sjálfstæð og hlutlæg starfsemi sem veitir staðfestingu og ráðgjöf með það að markmiði að skapa virði og bæta rekstur. Með kerfisbundnum vinnubrögðum metur innri endurskoðun virkni áhættustýringar, innra eftirlits og stjórnarhátta og styður fyrirtæki og stofnanir í að ná markmiðum sínum.

      KPMG býr yfir víðtækri reynslu á sviði innri endurskoðunar og veitir fyrirtækjum, stofnunum og sveitarfélögum þjónustu þar sem innri endurskoðun er úthýst að hluta eða öllu leyti. Þjónustan er sniðin að þörfum hvers viðskiptavinar og byggir á alþjóðlegum viðmiðum, sterkri sérfræðiþekkingu og skýru sjálfstæði frá endurskoðunarsviði KPMG.




      Þjónustan sem við veitum

      • Innri endurskoðun að hluta til eða öllu leyti

      • Afmarkaðar úttektir á innra eftirliti 
      • Úttektir á stjórnarháttum og námskeið í góðum stjórnarháttum
      • Úttekt og ráðgjöf á áhættustýringu og aðstoð við uppbygingu á áhættustýringu
      • Úttektir á hlítningu við lög og reglur
      • Ýmis konar staðfestingarvinna

      • Aðstoð við endurskoðunarnefndir við að byggja upp markvissa starfsemi
      • Aðstoð við innri endurskoðunardeildir við framkvæmd úttekta, uppbyggingar á markvissri áætlun og jafnhliða að deila þekkingu til starfsfólks

      • Úttektir á upplýsingakerfum, öryggisúttektir og prófanir
      • Aðstoð við uppbyggingu innra eftirlits í upplýsingakerfum

      Hafðu samband

      Eva Kristjánsdóttir

      Meðeigandi

      KPMG in Iceland

      Sigurvin B. Sigurjónsson

      Meðeigandi

      KPMG in Iceland