Lagaumhverfi fyrirtækja og stofnana breytist sífellt og aðlagast nýjum tímum. Þetta getur gert stjórnendum erfitt fyrir að hafa skýra yfirsýn yfir þær kröfur laga og reglugerða sem gilda um starfsemina.
KPMG býr yfir umfangsmikilli þekkingu á íslensku lagaumhverfi og vinnur náið með fyrirtækjum, sveitarfélögum og opinberum aðilum við að meta fylgni við gildandi lög og reglur. Sérfræðingar okkar aðstoða við að greina lagalegar skyldur og tryggja að ferlar, verklag og eftirlit styðji við öruggan og skilvirkan rekstur.
Við bjóðum fjölbreytta aðstoð við mótun eða endurskoðun ferla og eftirlitsþátta sem auka öryggi, gagnsæi og skilvirkni. Einnig greinum við þau ferli sem þegar eru til staðar og metum hvort þau standist kröfur stjórnvalda og eftirlitsaðila. Í framhaldinu skýrum við niðurstöður í ítarlegri skýrslu sem tekur til lagaumhverfis, áhættuþátta og mögulegra frávika ásamt tillögum að úrbótum.