Skip to main content

      Ásgeir hóf störf á skatta- og lögfræðisviði KPMG í september 2015. Frá árinu 2011 starfaði Ásgeir, samhliða námi, hjá Motus, sem á og rekur m.a. Lögheimtuna og Pacta lögmenn.

      Hjá KPMG hefur Ásgeir sérhæft sig í skattarétti og fyrirtækja- og félagarétti. Í störfum sínum hjá KPMG hefur Ásgeir sinnt ráðgjöf til fyrirtækja sem eru í alþjóðlegri starfsemi. Þá hefur hann sinnt ráðgjöf til fyrirtækja, fjárfesta og hluthafa í tengslum við kaup- og sölur á fyrirtækjum, samrunum og fjármögnun. Ásgeir hefur lagt ríka áherslu á að veita ráðgjöf til nýsköpunar- og vaxtarfyrirtækja og í tengslum við það komið að mörgum fjármögnunarverkefnum hjá slíkum fyrirtækjum og þá helst með lögfræðilega ráðgjöf. Ásgeir hefur farið fyrir aðkomu KPMG að samstarfsverkefninu „Nasdaq – First North“ og þannig bæði setið sjálfur og haldið fjölmörg undirbúningsnámskeið fyrir skráningar á First North.

      1. Education & qualification

        MBA nám við Háskólann í Reykjavík.

        ML í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2015

        BA í lögfræði frá Háskólanum í Reykjavík 2013