Helgi hefur starfað hjá KPMG frá árinu 1998 og verið löggiltur endurskoðandi frá árinu 2008. Hann er hluthafi á endurskoðunarsviði KPMG á Akureyri en hefur jafnframt starfað á skrifstofum félagsins í Reykjavík og Vestmannaeyjum.
Helgi hefur víðtæka reynslu af endurskoðun og reikningsskilum fyrirtækja af öllum stærðum og gerðum, í fjölbreyttum atvinnugreinum, bæði í einkarekstri og hjá sveitarfélögum. Þá hefur hann einnig umfangsmikla reynslu af ráðgjöf á sviði skattamála fyrir einstaklinga og fyrirtæki.