Hrafnhildur hefur verið hluthafi frá árinu 2010. Hún er fagstjóri endurskoðunarsviðs hjá KPMG, áður var hún yfirmaður gæðamála hjá félaginu.
Hrafnhildur hóf störf hjá KPMG árið 1996. Hún er virk í störfum Félags löggiltra endurskoðenda, er í endurskoðunarnefnd félagsins og hefur komið að gæðamálum og gæðaeftirliti félagsins.
Hagnýt reynsla
Hrafnhildur hefur víðtæka reynslu og þekkingu í endurskoðun og reikningsskilum. Hún hefur sérhæft sig í endurskoðun á fjármálafyrirtækjum og lífeyrissjóðum, bæði ytri og innri endurskoðun, en jafnframt í endurskoðun stærri fyrirtækja og samstæða sem gera upp samkvæmt alþjóðlegum reikningsskilastöðlum.