Þann 12. ágúst næstkomandi verður almyrkvi á sólu sýnilegur frá Íslandi. Slíkir atburðir eru meðal fágætustu og eftirtektarverðustu náttúrufyrirbæra sem fólk getur upplifað og er búist við að almyrkvinn veki mikla athygli bæði hér á landi og víða um heim.
Af því tilefni gefur KPMG áhugasömum sólmyrkvagleraugu á meðan birgðir endast svo sem flestir geti notið viðburðarins á öruggan hátt.
Gleraugin má nálgast á skrifstofu okkar í Borgartúni 27 milli kl. 09:00 og 15:00, mánudaga til fimmtudaga.
Sólmyrkvagleraugun eru framleidd í Bandaríkjunum af fyrirtækinu Rainbow Symphony og eru ISO- og CE-vottuð til að tryggja öruggt áhorf og sem mestu gæðin við áhorf.