KPMG á Íslandi og hugbúnaðarfyrirtækið DecideAct hafa undirritað samstarfssamning sem mun auka þjónustustig við viðskiptavini KPMG. Samstarfið felst í því m.a. að viðskiptavinum stendur til boða að fá niðurstöður stefnumótunarvinnu og aðgerðaráætlanir afhentar tilbúnar til innleiðingar í hugbúnaði DecideAct. Hugbúnaður fyrirtækisins hefur verið þróaður í yfir 10 ár og er öflug lausn fyrir fyrirtæki og stofnanir sem vilja tryggja framgang og markvissa innleiðingu á stefnu. Fyrirtækið er skráð á First North markaðinn í Danmörku og var stofnað af þeim Bjarna Snæbirni Jónssyni og Flemming Videriksen .
Meðal viðskiptavina DecideAct á Íslandi eru Orkuveita Reykjavíkur, Kópavogur, Samkaup, Háskóli Íslands, Ölgerðin, Isavia, MAST, Matís, Slysavarnafélagið Landsbjörg og Þorbjörn.