Skip to main content

      KPMG hefur verið fengið til að styðja við innleiðingu Microsoft Copilot hjá íslenska ríkinu með ráðgjöf, breytingastjórnun og þjálfun starfsfólks. Verkefnið er hluti af samræmdu átaki ríkisins til að efla stafræna hæfni, auka skilvirkni og stuðla að ábyrgri notkun gervigreindar í opinberri þjónustu.

       

      Um er að ræða umfangsmikið umbreytingarverkefni sem snýr ekki aðeins að innleiðingu nýrrar tækni heldur einnig að því að styðja starfsfólk við að tileinka sér ný vinnubrögð og nýta gervigreind á árangursríkan og ábyrgan hátt. Markmið verkefnisins er að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og skapa sameiginlega nálgun við nýtingu gervigreindar innan ríkisins.

      Hlutverk KPMG felst meðal annars í ráðgjöf um innleiðingu, breytingastjórnun og þjálfun stjórnenda og starfsfólks. Fræðslan nær yfir grunnþekkingu á gervigreind og ábyrga og hagnýta notkun Copilot.

      KPMG býr yfir víðtækri reynslu af gervigreindarverkefnum og stafrænni umbreytingu, bæði hér á landi og á alþjóðavísu. Samstarf KPMG og Microsoft á heimsvísu veitir aðgang að sérfræðiþekkingu, aðferðum og reynslu sem nýtist við innleiðingu lausna á borð við Microsoft Copilot.

      Innleiðing gervigreindar snýst ekki eingöngu um tæknina sjálfa heldur einnig um fólk, ferla og menningu. Reynslan sýnir að raunverulegur árangur næst þegar starfsfólk fær rétta þjálfun, stuðning og tækifæri til að þróa ný vinnubrögð. Með þeirri nálgun er hægt að umbreyta möguleikum gervigreindar í raunverulegan ávinning fyrir starfsemi og þjónustu.

       

      Nánari upplýsingar má finna á vef Stjórnarráðsins. 


      Við erum stolt af því að taka þátt í þessu mikilvæga verkefni og styðja við eitt stærsta sameiginlega gervigreindarátak sem ráðist hefur verið í á Íslandi. Verkefnið endurspeglar vaxandi hlutverk gervigreindar í íslensku atvinnulífi og mikilvægi þess að innleiðing hennar byggi á traustum grunni þekkingar, öryggis og ábyrgðar.
      Davíð Halldórsson