Skip to main content

      Við óskum Orra Hauksyni og Gunnari Fjalari Helgasyni til hamingju með kaupin á Set ehf. á Selfossi. 

      KPMG sá um fjárhagslega og lögfræðilega ráðgjöf til seljenda. Auk þess sá starfsfólk KPMG Law og  Deal Advisory um lögfræðilegan, fjárhagslegan og skattalegan undirbúning við félagið í aðdraganda sölunnar.

       

      Félagið er rúmlega hálfrar aldar gamalt framleiðslufyrirtæki sem sérhæfir sig í framleiðslu á einangruðum rörum og plaströrum fyrir innviðakerfi, meðal annars hita, vatns og fráveitur. Árleg velta félagsins nemur rúmlega 5 milljörðum króna og hjá því starfa að jafnaði um 100 manns, flestir á Suðurlandi.

      Seljendur félagsins eru fjölskyldan sem stofnaði það og rak á fyrstu áratugum starfseminnar, þeir Bergsteinn Einarsson og Örn Einarsson ásamt nánustu skyldmennum þeirra. Faðir þeirra, Einar Elíasson, stofnaði Steypuiðjuna á Selfossi árið 1968 og setti Set á laggirnar tíu árum síðar, árið 1978.

      Auk höfuðstöðvanna á Selfossi rekur félagið sölustarfsemi í Danmörku, framleiðslueiningu í Þýskalandi og lageraðstöðu í Reykjavík.