Í alþjóðlegri rannsókn KPMG er fjallað um traust fólks á gervigreind, ábyrga gervigreind, væntingar til stjórnunar gervigreindar og ávinning og áhættu fyrir fyrirtæki og samfélag.
Í samstarfi við háskólann í Queensland vann KPMG í Ástralíu fyrstu alþjóðlegu rannsóknina á hnattrænum viðhorfum til gervigreindar (AI).
Gervigreind er að breyta daglegu lífi með tilkomu spjallmenna, samfélagsmiðla, andlitsþekkingar, forvörnum gegn svikum og svo mætti lengi telja en þrátt fyrir mikla útbreiðslu er víða ekki nægur skilningur á gervigreind.
Í könnuninni er viðhorf og traust almennings til gervigreindar í 17 löndum rannsökuð og ljósi varpað á helstu drifkrafta trausts, væntingar samfélagsins um stjórnun og stjórnun gervigreindar, hvernig fólk er að upplifa ávinning og áhættu af gervigreind og hvað fólki finnst um notkun hennar í vinnu.