Skip to main content

      Fyrirtæki tilbúin fyrir umræðu um skattamál

      Með Skattaspori KPMG geta stjórnendur sett fram skýra yfirsýn yfir heildarskattgreiðslur fyrirtækis, sundurliðaðar eftir landssvæðum, skatttegundum og þörfum stjórnenda. Í ljósi vaxandi umfjöllunar um skattamál í fjölmiðlum, hjá hagsmunasamtökum og fjárfestum hefur orðsporsáhætta aukist til muna.

      Skattaspor KPMG gerir stjórnendum kleift að svara fljótt, faglega og af öryggi þegar upp koma spurningar eða umræða um skattamál. Upplýsingarnar eru settar fram á skýran og aðgengilegan hátt sem hjálpar til við að bregðast við óvæginni eða óupplýstri umræðu og sýna raunveruleg samfélagsleg áhrif fyrirtækisins.

      Vandað tæki fyrir áætlanagerð

      Með Skattaspori KPMG fá stjórnendur fyrirtækja með einföldum hætti yfirsýn yfir heildarskattgreiðslur þeirra sem hægt er að nýta við áætlanagerð. Unnt er að styðjast við upplýsingar úr yfirlitinu þegar skattastefna fyrirtækja er mótuð, en skýr skattastefna getur nýst fyrirtækjum til að ná betri stöðu á markaði og aukið áhuga fjárfesta.

      Hvernig fer þetta fram?

      Fyrirtækjum er sendur einfaldur spurningalisti sem fylltur er út fyrir öll félög innan samstæðunnar með rafrænum hætti. Með þessum hætti fæst yfirlit yfir allar skattgreiðslur viðkomandi fyrirtækja. Skattasporið veitir yfirgripsmikið yfirlit yfir lykiltölur og vísbendingar um heildar skattaáhættu samstæðunnar. Skattasporið er hannað með þeim hætti að hægt er að nota það milli landa og atvinnugreina og með einföldum hætti er unnt að laga það að þörfum hvers fyrirtækis

       

      KPMG getur einnig veitt viðskiptavinum aðstoð við eftirfarandi atriði:

      • Verklag og framkvæmd á reglum um skattgreiðslur.
      • Endurskoðun skattastefnu og mat á áhættu í skattaumhverfinu.
      • Setja viðmið um áhættu tengda skattamálum.

       


      • Spurningalisti

        Sendur til allra félaga innan viðkomandi samstæðu.

      • Stuðningur við útfyllingu

        Starfsfólk KPMG veitir upplýsingar og aðstoð við að fylla út listann.

      • Utanumhald

        KPMG safnar saman öllum upplýsingunum.

      • Greining

        Niðurstöður teknar saman og greindar.

      • Niðurstöður

        KPMG afhendir skýrslu með niðurstöðum og greiningum á þeim.


      Hafðu samband

      Soffía Eydís Björgvinsdóttir

      Lögmaður og partner hjá KPMG Law

      KPMG á Íslandi