Skilvirkt ferli og markmiðasetning er lykill að árangri
Við vitum að áætlanagerð sveitarfélaga er bæði mikilvægt og flókið ferli þar sem unnið er með upplýsingar frá mörgum mismunandi aðilum innan stjórnkerfis sveitarfélaga. Þess vegna leituðum við til stjórnenda sveitarfélaga. Með því að gera ítarlega könnun á áskorunum þeirra höfum við fengið verðmætar upplýsingar sem eru grunnurinn að þróun nýrrar lausnar KPMG.
Niðurstöðurnar sýna að með því að einfalda ferlið, gera það skilvirkara og setja skýr markmið um árangur er hægt að ná meiri árangri í fjármálum sveitarfélaga.
stjórnenda vilja ná meiri árangri í áætlanagerð
Helstu áskoranir í áætlunargerð
- Tímafrekt ferli
- Erfitt að nálgast rauntímagögn
- Flókið að sameina áætlanir ólíkra sviða og deilda
- Markmið ekki nógu skýr
Skref inn í framtíðina
Ásinn, áætlunarlíkan KPMG fyrir sveitarfélög, er skref inn í framtíðina og gerir stjórnendum kleift að gera betri áætlanir fyrir sín sveitarfélög. Ásinn er framsækin tæknilausn sem er þróuð af KPMG og byggir á áralangri sérfræðiþekkingu KPMG í áætlanagerð og fjármálum sveitarfélaga. Fjárhagsgögn eru sótt sjálfvirkt í fjárhagskerfi sveitarfélagsins. Öll áætlunarvinna er í gegnum þægilegt vefviðmót sem hentar öllum.
Meiri yfirsýn
Stjórnendur geta ávallt séð stöðu á stökum áætlunum og fengið yfirsýn yfir heildar áætlanagerð sveitarfélagsins hverju sinni. Öll gögn færast inn í rauntíma og hægt er að eiga samskipti milli aðila inni í Ásnum, sem einfaldar upplýsingagjöf og athugasemdir milli aðila.
Einfaldari áætlanagerð með Ásnum
Betri áætlanir
Ásinn frá KPMG einfaldar starf fjármálastjórnenda og starfsfólks fjármáladeilda sveitarfélaga. Með öflugum mælaborðum hafa lykilaðilar í áætlunarferlinu góða yfirsýn yfir fjármálaáætlunina og geta tekið betri ákvarðandi í ferlinu. Ásinn stuðlar því að öruggari og betri áætlunum.
Lykill að auknum árangri
Ásinn frá KPMG stuðlar að betri ákvarðanatöku, eykur yfirsýn í áætlanagerð og tryggir verðmæt samskipti milli lykilaðila í ferlinu. Þessi framsækna lausn frá KPMG er lykill að því að ná betri árangri í áætlunum fyrir sveitarfélög og stuðla að betri nýtingu fjármagns fyrir farsælan rekstur þeirra.
Auðveld samvinna allra lykilaðila
Með Ásnum geta aðilar á öllum stigum áætlanagerðarinnar fært inn gögn með öruggum hætti í gegnum einfalt notandaviðmót á vefnum. Ráðgjafar KPMG geta aðstoðað með áætlanagerð inni í lausninni og veitt verðmæta ráðgjöf við áætlanagerð.