Hagaðilar og eftirlitsaðilar leggja stöðugt meiri áherslu á sjálfbærniupplýsingar og mikilvægt er að öll fyrirtæki undirbúi sig fyrir auknar kröfur. Þróunin er í þá átt að gerðar verða sömu kröfur til gerð sjálfbærniskýrslna og til ársreikninga hvað varðar vandaða, ítarlega og áreiðanlega upplýsingagjöf. 

Fyrir liggur að tilskipun Evrópusambandsins um sjálfbærniupplýsingagjöf fyrirtækja mun verða innleidd í Íslensk lög, tímasetning liggur ekki fyrir en í EU löndunum er miðað við ársbyrjun 2024.

Ásamt því að viðamiklir staðlar um framsetninguna verða innleiddir verður félögum gert skylt að afla sér óháðrar staðfestingar á sjálfbærniskýrslur sínar.

Einnig er gert ráð fyrir því að sjálfbærniskýrsla verði árituð á sama tíma og ársreikningur sem verður áskorun fyrir mörg fyrirtæki. 

Fyrirtæki þurfa að huga að sinni sjálfbærnivegferð eins fljótt og auðið er til þess að vera tilbúin þegar krafist verður af þeim að safna gögnum, meta og mæla árangur og birta skýringar og lykilmælikvarða.

Við aðstoðum þig

Þegar kemur að staðfestingunni er mikilvægt að fyrirtæki séu undirbúin þannig að ferlar og gögn séu tæk til óháðrar staðfestingar og að ekki verði um óvæntar uppákomur að ræða.

Til að aðstoða fyrirtækin á þessari vegferð býður KPMG upp á þjónustu sem miðar að því að gera úttekt á stöðunni og greina hvar úrbóta er þörf.


Úttektin

Tilgangur úttektarinnar er að aðstoða fyrirtæki við að undirbúa sig fyrir komandi löggjöf þannig að  gögn sem liggja til grundvallar sjálfbærniupplýsingum uppfylli kröfur sem gerðar eru til staðfestanlegra upplýsinga. 

Við lok úttektar taka sérfræðingar okkar saman skýrslu með helstu niðurstöðum úr okkar vinnu. Niðurstöður skýrslunnar má nýta til að undirbúa nauðsynlegar úrbætur á ferlum og skýrslugjöf um sjálfbærnimál áður en kemur að eiginlegri vinnu endurskoðenda við staðfestingu sjálfbærniskýrslunnar. 

Úttekt á upplýsingagjöf og innra eftirliti með sjálfbærniupplýsingum er grunnur að því að leggja fram full endurskoðaðar sjálfbærniskýrslur

Sérfræðingar KPMG á sviði sjálfbærni og endurskoðunar geta veitt góða innsýn inn í hvort núverandi ferli og verklag við gerð sjálfbærniskýrslu uppfylli kröfur alþjóðlegra endurskoðunarstaðla við óháða staðfestingarvinnu. Verkefnið getur fljótt orðið krefjandi og yfirgripsmikið - en með því að nálgast það á skipulegan hátt og með markvissri nálgun verður verkið mun einfaldara. 


Hafðu samband: