Samkomulag hefur tekist um kaup norska fjármála og tæknifyrirtækisins ECIT AS á meirihluta í bókhalds- og launaþjónustu KPMG sem rekin hefur verið undir heitinu Bókað. Gert er ráð fyrir endanlegum frágangi viðskiptanna í ársbyrjun 2025 en KPMG verður áfram hluthafi.

 

Fjárfest í hugviti, engar breytingar í mannahaldi

Starfsfólk Bókað telur um 80 manns og sinnir það þjónustu við um 2.000 fyrirtæki og stofnanir um land allt. Engar breytingar eru fyrirhugaðar í mannahaldi eða starfsstöðvum Bókað né heldur í þjónustuþáttum gagnvart viðskiptavinum. Framkvæmdastjóri félagsins verður Birna Mjöll Rannversdóttir sem hefur verið sviðsstjóri bókhaldssviðs KPMG til fjölda ára og verið meðeigandi hjá KPMG frá árinu 2015. Með kaupunum verður Bókað hluti af öflugu neti á sínu sérsviði en ECIT veitir bókhalds- og launaþjónustu á öllum Norðurlöndunum auk nokkurra annarra landa. ECIT hefur starfað á Íslandi frá árinu 2023 og hefur áður fjárfest í fjármálaþjónustu og bókhaldsfyrirtækinu Virtus auk smærri eininga á sviði bókhalds- og launaþjónustu. Starfsfólk ECIT á Íslandi mun samtals telja um 110 eftir að kaupin ganga í gegn.

ECIT AS er með yfir 2.500 starfsmenn á yfir hundrað skrifstofum í tíu löndum. Auk bókhalds- og launavinnslu veitir félagið víðtæka þjónustu á sviði upplýsingatækni og viðskiptalausna. Árstekjur ECIT samstæðunnar eru um 47 milljarðar króna. Hjá ECIT Virtus starfa ríflega 30 manns á Íslandi sem sinna víðtækri þjónustu við ríflega 1.000 viðskiptavini.

Fyrir hönd ECIT AS annaðist Halldór Þorkelsson hjá Arcur ehf. ráðgjöf um viðskiptin og milligöngu vegna þeirra. Nánari upplýsingar um ECIT AS má finna hér.

Nánari upplýsingar: 

Peter Lauring, forstjóri ECIT AS, peter.lauring@ecit.com

Hlynur Sigurðsson, hlynursigurdsson@kpmg.is

Mynd af Hlyni Sigurðssyni
Mynd af Peter Lauring