Nýársmálstofa SAF, Íslenska ferðaklasans og KPMG verður haldin kl. 14:30 þriðjudaginn 13. janúar 2026 við opnun ferðaþjónustuvikunnar.
Erindi frá ráðherra ferðamála, framtíðarhorfur í greininni ásamt rýni frá reynsluboltum verður meðal dagskrárliða. Rýnt verður í niðurstöður viðhorfskönnunar sem KPMG framkvæmir meðal ferðaþjónustufyrirtækja.
Fundargestum bjóðast léttar veitingar að loknum fundi.
Upptaka frá Nýársmálstofu ferðaþjónustunnar
Hér fyrir neðan má horfa á upptöku frá Nýársmálstofu ferðaþjónustunnar sem fram fór þriðjudaginn 13. janúar 2026.