Agnes Ísleifsdóttir

Senior Manager

KPMG á Íslandi

Agnes hóf störf hjá KPMG í byrjun árs 2012 þar sem hún hefur sérhæft sig í fjármálaráðgjöf með sérstaka árherslu á verðmat.

Helstu verkefni Agnesar hafa verið í tengslum við verðmat fyrirtækja, eigna og skuldbindinga. Hún hefur viðamikla reynslu af flókinni verðmatsvinnu í samræmi við alþjóðlega staðla til að mynda kaupverðsútdeilingar (e. Purchase Price Allocation), virðisrýrnunarpróf, mat á óefnislegum eignum og fjármálagjörningum.

Agnes hefur kennt verðmat fyrirtækja við Háskólann í Reykjavík frá árinu 2022. Þá hefur hún einnig reynslu af kaup- og söluferli fyrirtækja, áreiðanleikakönnunum og smíði fjárhagslíkana. 

  • B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík

  • MCF í fjármálum frá Háskólanum í Reykjavík