Höskuldur hóf störf hjá KPMG Law í nóvember 2019. Áður starfaði hann hjá Logos lögmannsþjónustu á milli 2006-2007 og hjá BBA Legal frá árinu 2007 (sem eigandi frá 2014). Hans helstu verkefni hafa verið á sviði fjármögnunarsamninga, fjármála- og félagaréttar, gjaldþrotaréttar, verðbréfamarkaðsréttar og í tengslum við samruna og yfirtökur.
Útgefið efni:
BÆKUR
- Lánssamningar milli banka og fyrirtækja, 2016.
GREINAR
- Fjármögnun fyrirtækja: Framtíð LIBOR, júlí 2018.
- Fyrirtækjakaup: Galli, febrúar 2018.
- Fyrirtækjakaup: Vátryggingar vegna ábyrgðaryfirlýsinga og skaðleysisloforða, október 2017.
- Fyrirtækjakaup: Er verið að borga „rétt verð“ fyrir fyrirtækið, ágúst 2017.
- Cross-border M&A and Company Law in Iceland – selected topics, apríl 2016.
-
Cand. Jur. frá Háskóla Íslands 2006
-
LL.M. í alþjóðlegum banka- og fjármögnunarrétti frá UCL í London 2011.
-
Héraðsdómslögmaður 2009.