Um starfið
Hefur þú reynslu af endurskoðun?
Við leitum nú að drífandi og talnaglöggum einstaklingum sem hafa áhuga á að vinna við að veita viðskiptavinum KPMG þjónustu á sviði reikningsskila, skatta og endurskoðunar ársreikninga. Ef að þú býrð yfir reynslu á þessu sviði og vilt bætast við öflugan hóp starfsfólks KPMG þá viljum við endilega heyra frá þér.
Dæmi um verkefni og ábyrgð:
- Þjónusta við fyrirtæki og opinbera aðila á sviði;
- endurskoðunar og annarrar staðfestingarvinnu, s.s. á sviði sjálfbærni
- reikningsskila og gerð ársreikninga
- skattskila og tengdra mál
- Ýmis ráðgjafartengd verkefni.
- Verkefni tengd gæðamálum og faglegu starfi KPMG.
- Aðrar tilfallandi greiningar og verkefni.
Hæfniskröfur:
- Brennandi áhugi á viðskiptum og starfsemi fyrirtækja.
- Macc-gráða í reikningsskilum og endurskoðun.
- A.m.k 2 ára starfsreynsla af reikningsskilum og endurskoðun.
- Góð tölvufærni, greiningarhæfni og enskukunnátta.
- Frumkvæði, vandvirkni og öguð vinnubrögð.
- Hæfni til að vinna í teymi sem og sjálfstætt auk ríkrar þjónustulundar.
Að vinna hjá KPMG
Okkar markmið er að vera eftirsóknarverður og framúrskarandi vinnustaður fyrir fjölbreyttan hóp af fólki. Við leggjum því mikla áherslu á að bjóða upp á heilbrigt og hvetjandi starfsumhverfi þar sem starfsfólk hefur tækifæri til að vaxa og dafna í starfi. Við náum árangri saman með því að hafa traust, sveigjanleika og góð samskipti að leiðarljósi á vinnustaðnum.
Nokkur dæmi um kosti þess að vinna hjá KPMG:
- Fjölbreytt verkefni og tækifæri til að hafa jákvæð áhrif á viðskiptavini og samfélagið.
- Frábær tækifæri til að læra af leiðandi sérfræðingum hjá KPMG á Íslandi og erlendis.
- Möguleikar á að þróast í starfi.
- Fyrsta flokks mötuneyti í Borgartúni með fjölbreyttu og hollu fæði.
- Heilsueflandi vinnustaður, t.d. er bootcamp í boði tvisvar í viku í Borgartúni, hlaupaklúbbur, fjallgönguklúbbur, golfklúbbur, vikulegur fótbolti og fleira.
- Aðgangur að heilsustyrk, samgöngustyrk og styrk fyrir tímum hjá sálfræðingi.
- Sveigjanleiki til að vinna frá mismunandi skrifstofum og að heiman þegar við á.
- Einn launaður dagur á ári til sjálfboðavinnu.
- Og margt fleira.
Umsóknarfrestur er til og með 4. júní 2023
Umsóknir ásamt ferilskrá og kynningarbréfi óskast fylltar út á ráðningarsíðu KPMG (hlekkur hér til hliðar til að sækja um).
Nánari upplýsingar veitir Hildur Steinþórsdóttir sérfræðingur í mannauðsmálum á hsteinthorsdottir@kpmg.is eða Magnús Jónsson sviðsstjóri endurskoðunarsviðs á magnusjonsson@kpmg.is.
KPMG er alþjóðlegt fyrirtæki sem leggur áherslu á að veita viðskiptavinum sínum framúrskarandi þjónustu með sjálfbærni að leiðarljósi og býður upp á frábær tækifæri til starfsþróunar í sveigjanlegu og fjölbreyttu vinnuumhverfi. Hjá KPMG á Íslandi starfa rúmlega 300 einstaklingar á 16 skrifstofum um land allt með fjölbreytta menntun og reynslu sem þjónusta viðskiptavini í einka- og opinbera geiranum af öllum stærðum og gerðum.