Skip to main content

      Framtíðardagur KPMG leiðir saman stjórnendur og leiðtoga úr íslensku atvinnulífi til að ræða þær breytingar sem munu móta rekstrarumhverfi næstu ára. Á dagskrá eru áhrif alþjóðamála á íslenskt atvinnulíf, sýn forstjóra á helstu tækifæri og áskoranir framundan, mannmiðuð gervigreind og reynsla leiðtoga af því að stýra umbreytingum í síbreytilegu umhverfi. Markmiðið er að veita þátttakendum hagnýta innsýn fyrir ákvarðanir til framtíðar.

      Dagskrá

      Hlynur Sigurðsson, framkvæmdastjóri KPMG setur daginn. 
      Fundarstjóri er Soffía Eydís Björgvinsdóttir, meðeigandi KPMG Law.

      When Geopolitical Tectonic Plates Shift

      What a Changing World Means for Icelandic Business


      Stefano Moritsch

      Global Geopolitics Lead, KPMG International

      The global geopolitical landscape is being reshaped by intensifying conflicts, hybrid warfare and cyber threats, fragmenting globalisation, and growing competition over critical technologies. These developments are creating new risks and opportunities for businesses worldwide.

      For Iceland and the wider Nordic region, the growing strategic importance of the Arctic and North Atlantic, alongside vulnerabilities in critical infrastructure, energy and supply chains, is placing the region firmly at the centre of geopolitical competition.

      In this presentation, we will explore key geopolitical trends and potential conflict scenarios, examining what they mean for Icelandic businesses. We will consider how organisations can strengthen resilience, manage emerging risks and seize opportunities in energy, technology, trade and investment in an increasingly volatile world.

      Stefano

      Stefano Moritsch er einn af leiðandi sérfræðingum KPMG á sviði alþjóðamála. Hann ráðleggur fyrirtækjum og stjórnvöldum um áhrif alþjóðlegrar þróunar á rekstur og samkeppnishæfni og styður leiðtoga við ákvarðanatöku í heimi aukinnar óvissu.


      María Mjöll Jónsdóttir

      Sendiherra Íslands í París

      María Mjöll Jónsdóttir ræðir við Stefano Moritsch að loknu erindi hans um þróun alþjóðamála, stöðu Íslands í breyttu alþjóðlegu umhverfi og hvað þróunin getur þýtt fyrir íslenskt atvinnulíf.

      María Mjöll



      Framtíðarsýn íslenskra og alþjóðlegra stjórnenda


      Hafþór Ægir Sigurjónsson

      Forstöðumaður rekstrarráðgjafar og meðeigandi KPMG


      Hvernig horfa íslenskir forstjórar til framtíðar í samanburði við stjórnendur erlendis?

      Hafþór Ægir Sigurjónsson fer yfir helstu niðurstöður CEO Outlook könnunar KPMG á Íslandi og ber þær saman við alþjóðlegar niðurstöður. Fjallað verður um sýn stjórnenda á hagvöxt, áhættu, gervigreind og þau tækifæri og áskoranir sem móta rekstrarumhverfið á komandi árum.

      Hafþór Ægir Sigurjónsson leiðir rekstrarráðgjöf KPMG á Íslandi og atvinnugreinaþjónustu fyrirtækisins á sviði orku og innviða. Hann hefur víðtæka reynslu af stefnumótun, umbreytingum og stefnumarkandi ákvarðanatöku og ráðleggur stjórnendum um hvernig styrkja megi samkeppnisstöðu fyrirtækja í breytilegu rekstrarumhverfi. Hann leiðir jafnframt norrænt samstarf KPMG á sviði loftslagstengdrar ráðgjafar.



      Kaffihlé 



      What Matters Next: Human Leadership in the AI Era


      Kate O´Neill

      Chief Tech Humanist, KO Insights

       

      AI’s potential does not become progress automatically. As technology reshapes business and society, leaders must decide not only what AI can do, but what it should do—and what they want to make possible for people.

      In this engaging keynote, Tech Humanist Kate O’Neill connects the AI conversation to the human choices that determine its value: clarifying purpose, redesigning work, strengthening human capability, and keeping judgment and accountability where they belong. Moving beyond adoption and efficiency alone, she explores why the goal is not simply to make individual tasks faster, but to make whole outcomes better. Leaders will leave with a practical lens for delivering value now while creating what comes next—and a question to guide both: What are we choosing to make possible for people, not merely possible with AI?


      Kate O’Neill hefur skipað sér í fremstu röð þeirra sem fjalla um áhrif tækni og gervigreindar á fólk og samfélag. Hún hefur ráðlagt Google, Microsoft og IBM, skrifað sex bækur og var nýlega valin á lista Thinkers50 yfir áhrifamestu hugsuði heims á sviði stjórnunar og viðskipta.



      Forysta á tímum umbreytinga:

      Pallborðsumræður stjórnenda

       

      Ásgeir Skorri Thoroddsen, meðeigandi hjá KPMG, stýrir pallborðsumræðum þar sem stjórnendur deila sýn sinni á þær umbreytingar sem móta rekstrarumhverfi fyrirtækja og hvernig þeir bregðast við nýjum tækifærum og áskorunum.

       

      Þátttakendur í pallborði:

      Ásthildur Otharsdóttir, meðeigandi Frumtak Ventures

      Daði Kristjánsson, framkvæmdastjóri Visku sjóða

      Gunnar Páll Tryggvason, stjórnarformaður Alfa Framtak

      Ingvar Hjálmarsson, ráðgjafi og stjórnarmaður 

      Tinna Traustadóttir, framkvæmdastjóri, sala og viðskiptaþróun, Landsvirkjun 




      Ráðstefnulok og léttar veitingar




      Myndir frá Framtíðardegi KPMG 2025

      Stefano Moritsch og Þórdís Kolbrún
      Gestir á Framtíðardegi 2025
      Gestir á Framtíðardegi 2025

      Stefano Moritsch og Þórdís Kolbrún
      Gestir á Framtíðardegi 2025
      Gestir á Framtíðardegi 2025

      Gestir á Framtíðardegi 2025
      Stefano Moritsch og Þórdís Kolbrún
      Gestir á Framtíðardegi 2025

      Tengiliður viðburðar

      Hildur Ottesen Hauksdóttir

      Forstöðumaður markaðsmála