Í upphafi kjörtímabils sveitarstjórna bjóðum við hjá KPMG upp á fræðslufund fyrir sveitarstjórnarfulltrúa og lykilstjórnendur. Markmið fundarins er að efla kjörna fulltrúa og stjórnendur í hlutverki sínu og styðja við farsæla og faglega stjórnun sveitarfélaga.
Á fundinum verður fjallað um helstu verkefni sveitarstjórna, réttindi og skyldur sveitarstjórnarmanna, ábyrgð, grunnatriði í stjórnsýslu og fjármál sveitarfélaga. Auk þess er komið inn á ýmsar áskoranir og tækifæri sem sveitarfélögin standa frammi fyrir í síbreytilegu umhverfi.
Fræðslufundur er haldinn fyrir hvert sveitarfélag fyrir sig og sniðinn að aðstæðum og áskorunum á hverjum stað. Gert er ráð fyrir að fundurinn taki um tvær klukkustundir og boðið verður upp á umræður í fundarlok. Fræðslan er í höndum sérfræðinga KPMG í sveitarstjórnarmálum og er sveitarfélaginu að kostnaðarlausu.
Óskir þú eftir fræðslufundi fyrir þig og þitt samstarfsfólk biðjum við þig að hafa samband og við finnum í sameiningu tíma sem hentar.