Skip to main content

      Við þekkjum sveitarfélög

      KPMG tekur þátt í Fjármálaráðstefnu sveitarfélaga 2026 og býður ráðstefnugestum að koma við á bás okkar til að ræða fjármál, rekstur og framtíðaráskoranir sveitarfélaga.

      Við þjónustum meirihluta sveitarfélaga á Íslandi og byggjum á áralangri reynslu af ráðgjöf á sviði rekstrar, fjármálastjórnunar og stefnumótunar. Á básnum deilum við hagnýtum lausnum og raunverulegum dæmum sem styðja við upplýsta ákvarðanatöku og skilvirkari rekstur.

      Meðal þess sem kynnt verður eru:

      • Ásinn, áætlanalausn KPMG fyrir sveitarfélög sem þróuð hefur verið út frá reynslu sérfræðinga okkar.
      • Stjórnendamælaborð sem umbreyta gögnum í skýrar og aðgengilegar upplýsingar fyrir stjórnendur og kjörna fulltrúa.
      • Gervigreind og tæknilausnir, þar sem farið verður yfir tækifæri, innleiðingu og val á kerfum.
      • Raunveruleg dæmi um hvernig gögn og tækni geta stutt við betri ákvarðanir og aukið virði fyrir sveitarfélög.

      Við hlökkum til að hitta sveitarstjórnarfólk og starfsfólk sveitarfélaga og ræða viðfangsefni samtímans og lausnir framtíðarinnar.

      Tengiliður viðburðar

      Magnús Kristjánsson

      Hluthafi

      KPMG á Íslandi