Skip to main content

      Fagmennska, ábyrgð og traust

      KPMG á Íslandi starfar samkvæmt skýrum stjórnarháttum sem byggja á fagmennsku, ábyrgð og trausti. Fyrirtækið er sjálfstætt íslenskt fyrirtæki og hluti af alþjóðlegu KPMG neti sem setur sameiginleg viðmið um gæði, siðferði og eftirlit. Með sterkum faglegum gildum, skýrri ábyrgð og traustu eftirliti tryggjum við gæði í þjónustu, sjálfstæði í faglegu mati og traust í samskiptum við viðskiptavini, stjórnvöld og samfélagið í heild. KPMG á Íslandi ber fulla ábyrgð á sinni starfsemi og starfar ávallt í samræmi við íslensk lög og reglur.


      • Traust í forgrunni

        Sterkir stjórnarhættir byggja á fagmennsku, gagnsæi og ábyrgð í allri ákvarðanatöku.

      • Skýr ábyrgð

        Skýrt hlutverk stjórnar og stjórnenda tryggir markvissa stjórn og virkt eftirlit.

      • Gæði og eftirlit

        Sameiginleg alþjóðleg viðmið KPMG styðja við gæði, samræmi og faglegt sjálfstæði.

      • Áhættustýring

        Virkar verkferlar til að greina, meta og stýra áhættu í daglegu starfi.

      • Siðferði og heilindi

        Siðareglur KPMG eru leiðarljós í samskiptum, þjónustu og innra starfi.

      • Staðbundin ábyrgð

        Sjálfstætt íslenskt fyrirtæki sem starfar í samræmi við íslensk lög og reglur.


      Ítarlegri upplýsingar

      Samkvæmt íslenskum félagarétti skulu upplýsingar um eigendur fyrirtækja liggja fyrir á opinberum vettvangi. Fyrir félög eins og KPMG, sem starfa á sviði endurskoðunar og ráðgjafar, eru kröfurnar ríkari vegna eðlis starfseminnar.

      Gagnsæisskýrslur KPMG veita skýra yfirsýn yfir hvernig faglegum og siðferðilegum kröfum er mætt innan KPMG netsins. Í skýrslunum er meðal annars fjallað um:

      • stjórnarhætti og skipulag KPMG netsins
      • gæðastjórnun og eftirlit með endurskoðunarstarfi
      • sjálfstæði endurskoðenda og meðferð hagsmunaárekstra
      • hæfni, þjálfun og þróun starfsfólks
      • innleiðingu sameiginlegra faglegra og siðferðilegra staðla

      KPMG ehf., kt. 590975-0449, Borgartúni 27, 105 Reykjavík, KPMG Law ehf. og KPMG Legal ehf. er umhugað um trúnað og leynd þeirra upplýsinga sem félaginu er treyst fyrir. KPMG hefur því einsett sér að tryggja viðeigandi vernd og notkun persónurekjanlegra upplýsinga sem safnað hefur verið af vefnum. 

      Almennir viðskiptaskilmálar KPMG gilda um þjónustu sem félagið veitir viðskiptavin samkvæmt verksamningi.

      KPMG er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra aðildarfyrirtækja. Upplýsingarnar á þessari síðu eru almenns eðlis og ætlaðar til fróðleiks. Þær koma ekki í stað faglegrar ráðgjafar eða þjónustu.

      Ráðgjöf, endurskoðun og önnur þjónusta er ávallt veitt af KPMG aðildarfyrirtæki í hverju landi fyrir sig, í samræmi við gildandi lög og reglur.

      Skilmálar og lagalegur fyrirvari KPMG eru skilgreindir á alþjóðlegum grunni og eru því birtir á ensku.


      Ársskýrsla KPMG 2025

      Yfirlit yfir rekstur félagsins 2024-2025 og skuldbindingar með tilliti til umhverfis, fólks, stjórnarhátta og samfélagsins.
      Outdoor shot of young woman using mobile phone outdoors in the city. Female business professional using smart phone in the city.