KPMG hefur unnið náið með fyrirtækjum í ferðaþjónustu frá stofnun félagsins. Sérfræðingar okkar hafa góðan skilning á rekstrarumhverfi og áskorunum fyrirtækja í ferðaþjónustu þar sem við höfum komið að fjölbreyttum verkefnum og unnið fyrir ólík ferðaþjónustufélög.
Við eigum gott samstarf við helstu hagaðila í greininni og vinnum reglulega greiningar til að hjálpa þeim að draga fram mikilvægar upplýsingar og stöðu á helstu álitamálum. Við erum því ákjósanlegur samstarfsaðili.
Þjónusta okkar við fyrirtæki í greininni er mjög fjölbreytt en þar má helst nefna:
- Bókhald og launavinnsla
- Uppgjör og endurskoðun
- Reikningsskilaráðgjöf
- Skattaráðgjöf, s.s. vegna virðisaukaskattsmála
- Fjármálaráðgjöf, s.s. greining fjárfestingatækifæra, fjármögnun, sameiningar auk kaup og sala
- Rekstrarráðgjöf, s.s. stefnumótun og endurskipulagning
- Ráðgjöf í upplýsingatæknimálum
- Sjálfbærniráðgjöf
- Ferlar og gæðamál